Úlfarsbraut 110, 113 Reykjavík (Grafarholt)
91.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
116 m2
91.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
74.900.000
Fasteignamat
73.950.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir: Falleg björt útsýnisíbúð með sérinngangi í Úlfarsárdal í Grafarholti. Stórir suðurgluggar sem gefa birtu og útsýni að dalnum og á nærumhverfi.
Göngu, hjólaleiðir og Úlfarsá ásamt skóla leikskóla, sundlaug og Fram íþróttafélag er á svæði. 
Húsið er byggt úr timbureiningum frá Strúktúr og því umhverfisvænn kostur.


Lýsing eignar: Gengið er upp tröppur í enda hússinn á efstu hæð. Þar tekur við rúmgóður pallur sem vísar í austur og suður sem gefur eign aukið útirými og þægindi.
Forstofa
parketlögð og innbyggðum góðum fataskápum.
Hjónaherbergi  er á vinstri hönd frá gangi, parketlagt og með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi við hlið hjónaherbergis, parketlagt og með fataskáp er í dag nýtt sem vinnustofa.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir að hluta. Baðinnrétting með skúffum og handlaug á borði. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu ofan við vask. Innangengt í rúmgóða flísalagða sturtu.
Þvottahús er inn af baðherbergi en stór rennihurð aðskilur rými. þvottahús er flísalagt rúmgott og með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi er á gangi gengt baðherbergi, parketlagt og með skáp.

Stofa, borðstofa og eldhús er í opnu björtu parketlögðu rými og með útgengi að rúmgóðum suðursvölum með útsýni að Úlfarsárdal. Stórir gluggar prýða rými með fallegu útsýni að dalnum og nærumhverfi.

Eldhús er með dökkri innréttingu efri skápum að hluta, neðri skápum og skúffum. Ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa samliggjandi parketlagt bjart rými.
Geymsla er í kjallara hússins ásamt hjóla og vagnageymslu.
Sameiginleg bílastæði húsa eru á lóð.

Einkar falleg snyrtileg eign á besta stað í Grafarholti þar sem öll helsta þjónusta og afþreying er í næsta nágrenni og stutt upp á Úlfarsfellið.
Sjón er sögu ríkari.


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..