Háaleitisbraut seld 117, 108 Reykjavík (Austurbær)
58.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
71 m2
58.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1965
Brunabótamat
30.450.000
Fasteignamat
45.350.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einkar vel staðsetta íbúð að Háaleitisbraut. Fallegt útsýni frá eign til austurs suður svalir með útsýni að nærumhverfi og sameiginlegum garði. Skipt hefur verið um glugga og húsið klætt að hluta málað og múrviðgert. 

Lýsing eignar: 
Komið er inn í sameiginlegan inngang og gengið upp á 3 hæð.
Forstofa parketlögð og með rúmgóðum skáp.
Eldhús parketlagt, innrétting og tæki upprunaleg. Gluggi í eldhúsi vísar til suðurs að svölum og garði. Parket í eldhúsi þarfnast endurnýjunar/lagfæringar.
Stofa/borðstofa parketlagt samliggjandi rými með glugga á tvo vegu til austur og suðurs. Útgengi frá stofu er út á rúmgóðar suðursvalir. 
Svalir eru með útgöngu á tvo vegu annars vegar frá stofu og hins vegar frá hjónaherbergi. Svalagólf sílanborin og máluð, svalahandrið endurnýjuð.
Svefnherbergisgangur er á hægri hönd frá forstofu, gangur parketlagður, góður fataskápur, tvö svefnherbergi og baðherbergi. 
Hjónaherbergi dúklagt og með skáp, gluggi í svefnherbergi vísar til suðurs að nærumhverfi og sameiginlegri lóð. Útgengi er út á svalir frá hjónaherbergi.
Barnaherbergi teppalagt og með glugga til suðurs.
Baðherbergi upprunalegt, dúkur á gólfi, salerni, frístandandi handlaug, baðkar/sturta. Efri skápar og hillur ásamt spegli með lýsingu fyrir ofan. 
Geymsla í kjallara hússins. 
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi
Hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Sameiginleg bílastæði á lóð.

Skipt hefur verið um glugga að hluta í húseign.
Þak yfirfarið.
Hús klætt að hluta, ný svalahandrið.
Fordyr húss endurgerð.


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..