Drafnarstígur 2A, 101 Reykjavík (Miðbær)
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
99 m2
81.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1955
Brunabótamat
43.550.000
Fasteignamat
57.250.000
Opið hús: 30. september 2023 kl. 13:00 til 13:30.

Opið hús: Drafnarstígur 2A, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 30. september 2023 milli kl. 13:00 og kl. 13:30. Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Sjarmerandi og einkar vel staðsetta 3-4 herb.  íbúð á 2. hæð í 101 Reykjavík. Rólegt nærumhverfi en öll helsta þjónusta og afþreying í göngufæri. 

Komið er inn í snyrtilega sameign og gengið upp teppalagðan stiga á 2 hæð. 
Forstofa einkar rúmgóð, parketlögð og með innbyggðum skáðum yfir heilan vegg.
Eldhús innangengt frá forstofu, flísalagt, innrétting með góðu skúffuplássi, viðarborðplata sem gefur hlýjan svip á rými. Gashelluborð, háfur og ofn í vinnuhæð. Flísalagður veggur að hluta við borð. Eldhúsvaskur við glugga sem gefur góða birtu inn í rými.
Stofa/borðstofa samliggjandi bjart parketlagt rými. Útgengi er út á svalir frá borðstofu.
Bókaherbergi er inn af borðstofu, þar er möguleiki að bæta við aukaherbergi.
Bað og svefnherbergisgangur er inn af forstofu, á gangi er innbyggður rúmgóður skápur.
Baðherbergi í enda gangs, flísalagt gólf og veggir að hluta. Baðkar/sturta, salerni, nett innrétting og vaskur á borði, skápar þar fyrir ofan, stór spegill á vegg og lýsing.
Hjónaherbergi parketlagt í enda gangs, gluggar á tvo vegu sem gefa góða birtu og útsýni að nærumhverfi.
Svefnherbergi/barnaherbergi, við hlið hjónaherbergis á gangi. 

Geymsla er í kjallara hússins, með stórum glugga og hillum.
Sameiginlegt þvottahús, hjóla/og vagnageymsla.

Framkvæmdir:

2022: Skipt um alla glugga og svalahurð í íbúð, sem og glugga í sameign.
2020: Skipt um teppi í stigagangi.
2017: Lagnir myndaðar og fóðraðar.
2016: Skipt um allt þakið og þakrennur.
2016: Svalir íbúðar steyptar upp á nýtt og skipt um svalahandrið.
2015: Skipt um framhliðar á eldhúsinnréttingu.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected] 
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 











 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..