Vallarhús seld 16, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
68 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
29.350.000
Fasteignamat
45.650.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einkar vel staðsetta mikið endurnýjaða íbúð með sérinngangi á jarðhæð með nýlegum suðurpalli í Grafarvoginum. Sundlaug, íþróttasvæði skólar og leikskólar í göngufæri.

Lýsing eignar:

Komið er inn um sér inngang í rúmgóða flísalagða forstofu. Innangengt er inn í þvottahús og geymslu íbúðar á vinstri hönd frá forstofu.
Miðrými parketlagt einkar rúmgott þegar komið er úr forstofu. Nýlegir opnir fataskápar og skúffur.
Svefnherbergi er á hægri hönd er komið er úr forstofu, parketlagt, rúmgott og með góðu opnu skápaplássi.
Opið rými eldhúss og stofu, parketlagt og með útgengi út á suðurpall sem gefur eign aukið rými og nýtingu. Suður pallur er um 25fm byggður 2021.
Eldhús: Nýlega innréttað með snyrtilegri hvítlakkaðri innréttingu, neðri skúffur og skápar. Gott geymslupláss í efri skápum. Ofn, helluborð og gott borðpláss. 
Baðherbergi er fyrir miðju eignar, flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi, grátónaðar flísar, upphengt salerni og opin sturta. Baðinnrétting hvítlökkuð með neðri skúffum og handlaug ofan á. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu þar fyrir ofan. 
Sameiginleg lóð og afnot af tveimur sérmerktum bílastæðum fyrir íbúð.

Gólfefni íbúðar parketlögð rými og forstofa endurnýjuð 2020.
Íbúð máluð og hurðir lakkaðar 2020. 
Fataskápar endurnýjaðir nóv. 2021
Pallur nýlegur 2021 ca. 25 fm.


Einkar smekklega nýlega endurnýjuð sjarmerandi eign á vinsælum stað í Grafarvogi.
Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected] 
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 





 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..