Garðsendi 21, 108 Reykjavík (Austurbær)
139.900.000 Kr.
Fjölbýli
8 herb.
250 m2
139.900.000
Stofur
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1961
Brunabótamat
104.150.000
Fasteignamat
135.750.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einkar fjölskylduvænt vel staðsett einbýli í einu vinsælasta hverfi borgarinnar. Elliðaárdalurinn í göngufæri. Aukaíbúð og bílskúr, næg bílastæði fyrir framan eign og gróinn garður ásamt rúmgóðum suður palli. Skólar, leikskólar og Víkingsheimilið ásamt allri almennri verslun og þjónustu í göngufæri.

Komið er að Garðsenda 21, Innkeyrsla er upphituð framan við húseign og bílskúr, stæði er fyrir allt að fjóra bíla.
Lýsing eignar:
 Aðalhæð: Gengið er upp steyptar tröppur inn á aðalhæð hússins.
Forstofa, hiti í gólfi. Rúmgott skápapláss með hvítlökkuðum skáp og skenk. Frá forstofu eru inngangar á tvo vegu að stofu og að eldhúsi.
Gestasalerni er innan forstofu, flísalagt að hluta, handlaug og upphengt salerni. 
Eldhús er bjart rúmgott með gluggum til austurs og suðurs, hvítlökkuð innrétting með efri og neðri skápum, flísar eru á milli skápa að hluta. Góður búrskápur við vegg í eldhúsi við ísskáp. Gott pláss er fyrir eldhúsborð við suður glugga eldhúss er vísar út að palli. Hiti er í gólfi eldhúss að hluta.
Stofa/borðstofa bjart parketlagt rými með útgengi að suðurpalli og garði hússins. Parket endurnýjað í stofu 2020.
Pallur við hús er til suðurs með útigeymslu, útgengi er frá palli á tvo vegu að garði húss til suðurs og að garði til norðurs. Gott skjól er á palli og gefur hann eign aukið nýtingarrými.

Efri hæð: Á efri hæð hússins eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og fataherbergi.
Hjónaherbergi 
bjart með útgengi út á austursvalir með útsýni að nærumhverfi. 
Svefnherbergi með glugga á tvo vegu bjart og rúmgott og annað minna á gangi. Fataherbergi er á milli svefnherbergja.
Baðherbergi er flísalagt bjart og rúmgott með glugga er vísar að Esju og að nærumhverfi. Nett baðinnrétting með handlaug og skáp. Baðkar/sturta, handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð innrétting með efri skápum og borði. Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Hiti er í gólfi baðherbergis.

Aukaíbúð: Komið er að íbúð að framanverðu við bílastæði og gengið inn í gott opið bjart snyrtilegt rými með stórum gluggum er vísa að garði til norðurs.
Þaðan er gengið niður tröppu að opnu flísalögðu rými, eldhús á hægri hönd, nett innrétting með efri og neðri skápum.
Baðherbergi/þvottahús, tenging fyrir þvottavél og þurrkara, borð og hillur þar fyrir ofan, þar innaf er baðherbergi með sturtuklefa og salerni. Innrétting rúmgóð með skápum, handlaug, spegli og innbyggðri lýsingu.
Við hlið eldhúss er útgengi frá íbúð.
Svefnaðstaða, flísalagt gólf og með opnum skáp. 

Bílskúr er innréttaður í dag sem studioíbúð, parketlagt opið rými. Eldhús, nett innrétting, efri og neðri skápar og með gluggum er vísa til suðurs.
Baðherbergi er sér með sturtuklefa, handlaug, skáp fyrir ofan, salerni og tengingu fyrir þvottavél. Bílskúr innréttaður 2019.

Skipt um járn á þaki 2020.
Drenað var í kringum húseign í kringum árið 2005.


Einkar gott einbýli með mikla möguleika á góðum leigutekjum miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu þaðan sem stutt er í allar áttir.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501.


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 




 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..