Sólvallagata seld 74, 101 Reykjavík (Miðbær)
67.700.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
100 m2
67.700.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1944
Brunabótamat
42.100.000
Fasteignamat
68.850.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsett eign á besta stað í 101 Reykjavík. Skóli, leikskólar, verslun og öll helsta þjónustu í göngufæri. Grandin og miðbærinn í göngufæri.
Möguleiki er að bæta við einu svefnherbergi innan íbúðar.

Lýsing eignar:
Komið er inn í snyrtilegan bjartan stigagang. Stigagangur var endurbættur í apríl 2020 skipt um teppi og málaður.
Inn um aðalinngang íbúðar tekur við parketlagður bjartur gangur. Gegn inngangi er útgengi að svölum með útsýni að bakgörðum gamla Vesturbæjarins og sameiginlegu porti.
Á hægri hönd gangs tekur við bjart parketlagt svefnherbergi með stórum glugga og góðum skáp.
Til móts við svefnherbergi er innangengt í eldhús sem er parketlagt með eldri innréttingu. Útsýni er frá eldhúsi að nærumhverfi.
Möguleiki er að færa eldhús inn í borðstofu og gera aukaherbergi. Eldhús yrði þá hluti af opnu rými borðstofu og stofu. Frá eldhúsi er opið á tvo vegu inn að gangi og að borðstofu. Hurð í dag er lokuð af með skáp borðstofumegin. 
Borðstofa og stofa er rúmgott samliggjandi, bjart parketlagt rými. Borðstofa er í dag nýtt sem svefnherbergi.

Við enda gangs vinstra megin frá inngangi er mjög rúmgott parketlagt hjónaherbergi með opnum skáp.
Baðherbergi,  upphengt salerni, handklæðaofn og handlaug á borði, skúffa þar undir. (Sturta í baðherbergi ásamt sturtubotn þarfnast viðgerða). 
Sameiginlegt þvottahús og geymsla eru í kjallara hússins.
Úr kjallara er útgengt í sameiginlegt lítið port.

Gluggar verða endurnýjaðir í íbúð, áætluð skipti í maí/jun 2024: Skipt verður um glugga á baðherbergi, glugga á gangi ásamt svalahurð og um gler í tveimur gluggum í stofu. Seljandi greiðir kostnað vegna þessara gluggaskipta.
Hús sprunguviðgert og yfirfarið 2022.
Lagnir myndaðar 2022, tillaga gerð í framhaldi að láta fóðra lagnir.
Dregið í nýtt rafmagn í íbúð 2020.

Skipt var um parket á allri íbúð 2018.
Íbúð máluð 2018.
Þak var endurnýjað á húsi 2017 og hús klætt austanmegin með viðhaldsfrírri klæðningu.
Svalir voru endurbættar og flotaðar 2017.

Sturtuklefi/baðherbergi þarfnast lagfæringar og lokafrágangs. Flísar fyrir sturtuklefa geta fylgt með í kaupum. 
Skipt var um blöndunartæki í sturtuklefa 2018.

Góð vel staðsett eign í 101 með mikla möguleika þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslun og afþreyingnu.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..